1000 METRA KÓNGURINN – SKOTMÓT
- 12 hours ago
- 2 min read

Skotsýn er styrktaraðili 1000 METRA KÓNGURINN – SKOTMÓTSINS 2026
Allir keppendur fá gjafabréf
Allir keppendur sem taka þátt í mótinu fá 5.000 kr. gjafabréf frá Skotsýn.
Vegleg verðlaun frá Skotsýn
🥇 1. verðlaunThe Works (með föstum herslulyklum)Verðmæti: 59.900 kr.
🥈 2. verðlaunRiffla- og sjónaukaverkfærasett með sérstökum herslutakmörkunumVerðmæti: 37.900 kr.
🥉 3. verðlaunSG Pulse hallamálVerðmæti: 28.900 kr.
Keppt verður í tveimur flokkum og verða verðlaun veitt í hvorum flokki.
Skráning er hafin
Skráning er hafin fyrir keppni þar sem nákvæmni, færni og góður undirbúningur ráða úrslitum.
📅 Dagsetning: Sunnudagurinn 5. júlí 2026
📍 Staður: Skotfélag Keflavíkur-Höfnum
🕘 Mótið hefst kl. 09:00
⏰ Mæting er í síðasta lagi kl. 08:40
Skráning
Keppnisreglur
Skráning
Við skráningu þarf að koma fram:
Nafn keppanda
Netfang
Teymisfélagi (ekki skylda ef enginn verður paraður við á staðnum)
Skotfélag sem keppt er fyrir (ekki skylda)
Kalíber
Skot / kúla
Keppnisflokkur (Opinn eða undir 8 mm)
Keppnisbúnaður
Riffill undir .50 cal.
Tvífótur.
Afturpúði.
Hljóðdeyfar eru leyfðir.
Hlaupbremsa er leyfð, en hún þarf að standast út fyrir skothúsið. Annars verður viðkomandi gefið refsistig.
Keppnisreglur
Fyrirkomulag skora verður samkvæmt erlendri fyrirmynd þar sem lengra færi gefur hærra skor.
Færin verða sex og verða kynnt fyrir mótsdag.
Fimm skot eru á hvert færi, nema á stysta færi þar sem skotin verða þrjú.
Skotið verður í pörum. Sá sem bíður að skjóta aðstoðar með því að spotta.
Heimilt er að nota spotting-sjónauka.
Aðilar innan pars skiptast á að skjóta.
Athugið: Ef veður verður óhagstætt eða aðstæður krefjast þess, áskilur mótshaldari sér rétt til að breyta keppnisreglum, dagskrá eða tímasetningum. Allar breytingar verða tilkynntar á fréttasíðu Skotsýnar.
Endilega deilið: Þekkir þú einhvern sem hefur áhuga á langdrægni, nákvæmnisskotfimi eða vill taka þátt? Endilega deildu fréttinni með honum.

