Rizzini BR240
Rizzini BR240
Rizzini BR240 er áreiðanleg og vel hönnuð haglabyssa sem sameinar klassískt útlit og nútímalega frammistöðu. Hún er byggð á sterkum stálramma með Cerakote yfirborðsmeðferð sem tryggir góða endingu og slitþol við krefjandi aðstæður.
Byssan er búin traustum vélbúnaði, þar á meðal box-lock kerfi, sjálfvirkum útkösturum og nákvæmum einvalsgikki, sem tryggir mjúka og örugga notkun. Tyrkneskt valhnotuskefti og einföld, stílhrein áferð gefa henni tímalaust og vandað útlit.
BR240 er fjölhæf byssa sem hentar jafnt til veiða og sportskotfimi, fyrir þá sem vilja áreiðanlega byssu með góðu jafnvægi og frammistöðu.
Tækni upplýsingar
Kalíber:
12, 20, 28, .410 (á 28ga ramma)Rammi:
Stálrammi með Cerakote yfirborðsmeðferðVélbúnaður:
Rizzini box-lock kerfi
Sjálfvirkir útkastarar
Einn valrofi á gikk (single selective trigger)
Læsing með bolt á neðri lásflipa (low-lugs)
Fast gikkskífa (ekki aftakanleg)
Gikkur ekki valrofanlegur í trap útgáfuSkreyting:
Lágmarks skrautgröftur
BR240 merki í gulliForendi:
Ávalur forendi
26 LPI gripmynsturSkefti:
Grade 2.5 tyrkneskt valhnotutré
26 LPI gripmynstur
Pistol gripHlaup:
Nikkel-króm stálhlaupRif (rib):
Taperað topprifFramsjón:
Hvít kúla (front bead)Lengd hlaups:
28″, 29″, 30″ eða 32″Choke:
5 stk nikkelhúðaðir – flushFylgir:
Rizzini ABS taska

