top of page
Rizzini BR110 SPORTER IPS

Rizzini BR110 SPORTER IPS

Rizzini BR110 Sporter IPS

Nýja Rizzini BR110 Sporter IPS (Improved Performance System) er sérútbúin keppnis- og æfingabyssa fyrir kröfuharða skotmenn sem vilja hámarks stillimöguleika og afköst. Byssan er byggð á traustri BR110 Sporter-grind og kemur með Grade 2 tyrknesku valhnotuskefti.

Þessi IPS-útgáfa er búin stillanlegu skepti, stillanlegum rib (miðrifi) og XL Bore hlaupum sem gera skotmanninum kleift að laga byssuna nákvæmlega að eigin skotstíl og sjónlínu. Að auki eru hlaupin og málmhlutar með Cerakote-húðun sem eykur slitþol og veitir nútímalegt útlit.

Byssan er fáanleg eingöngu í 12 kaliber með 30" eða 32" hlaupum og er afhent með 5 flush-type skiptanlegum hömlum (chokes).

Stillanlegi ribinn er verkfæralaus í notkun og býður upp á þrjár mismunandi stillingar:

  • 50/50
  • 60/40
  • 70/30

Rizzini BR110 Sporter IPS er fullstillanleg keppnisbyssa sem sameinar gæði, nákvæmni og fjölbreytta stillimöguleika í einum pakka fyrir þá sem vilja hámarka frammistöðu sína á skotvellinum.

  • Tækni upplýsingar

    Kalíber:
    12

    Rammi:
    Endingargóður, hreinn gráanodíseraður stálrammi

    Gikkur & öryggi:
    Einn valrofi á gikk (single selective trigger)
    Handvirkt öryggi

    Rif (rib):
    Fullstillanlegt rif – engin verkfæri nauðsynleg
    Stillingar: 50/50 | 60/40 | 70/30

    Skefti:
    Stillanlegt kinnstykki (adjustable comb)
    Grade 2 tyrkneskt valhnotutré
    26 LPI gripmynstur

    Hlaup:
    XL Bore – bakboruð hlaup (back bored)
    Lengd: 30″ eða 32″

    Choke:
    5 stk extended choke:
    Cylinder – Improved Cylinder – Modified – Improved Modified – Full

    Þyngd:
     8.5 lbs

     

1.175.000 kr.Price
Quantity
bottom of page